Menning

Rithöfundar hefja upp raust í MH

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Gerður Kristný er ein þeirra sem ætla að lesa upp í MH í kvöld.
Gerður Kristný er ein þeirra sem ætla að lesa upp í MH í kvöld. Mynd/Auðunn Níelsson

Menntaskólinn við Hamrahlíð fagnar fimmtíu ára afmæli sínu í þessari viku með ýmsum hætti.



Skólinn hefur löngum verið þekktur fyrir að fóstra listamenn og í kvöld hefja rithöfundar þar upp raust sína. Hamraskáldin svokölluðu munu lesa úr verkum sínum í Norðurkjallara, meðal þeirra eru Bragi Ólafsson, Bryndís Björgvinsdóttir Gerður Kristný, Hallgrímur Helgason, Hermann Stefánsson, Margrét Lóa Jónsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Yrsa Þöll Gylfadóttir og Þórunn Erlu Valdimarsdóttir.



Sumir þessara rithöfunda birtu sín fyrstu ljóð í skólablaði MH, Beneventum, en hafa síðan haslað sér völl í bókmenntalífinu svo um munar.



Dagskráin hefst klukkan 20.30 og aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.



Af öðrum viðburðum afmælisvikunnar má minnast á fyrirlestraröðina Aftur til framtíðar, þar sem fyrrverandi nemendur snúa aftur og ausa af viskubrunni sínum fyrir núverandi nemendur, gesti og gangandi, og afmælishátíð á laugardag sem hefst klukkan tvö og lýkur með stórtónleikum á hátíðasal skólans.



Nánari upplýsingar um afmælishátíð MH má finna á mh.is.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. september 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×