Viðskipti innlent

Ritstjóraskipti á Pressunni

Bjarki Ármannsson skrifar
Kristjón Kormákur Guðjónsson tekur við af Birni Inga Hrafnssyni.
Kristjón Kormákur Guðjónsson tekur við af Birni Inga Hrafnssyni. Vísir/Pjetur/Erni
Björn Ingi Hrafnsson hefur látið af starfi ritstjóra Pressunnar. Við af honum tekur Kristjón Kormákur Guðjónsson, fréttastjóri Vefpressunnar og rithöfundur.

Í tilkynningu frá Vefpressunni segir að Björn Ingi verði útgefandi allra miðla Vefpressunnar (Pressunnar, Eyjunnar og Bleikt) auk þess sem hann muni leiða „ný verkefni á vegum fyrirtækisins sem nánar verða kynnt á næstunni.“ Björn Ingi staðfesti í samtali við fréttastofu RÚV í dag að Vefpressan væri að skoða samstarf við DV, en að formlegar viðræður séu þó ekki hafnar.

Björn Ingi mun áfram stýra sjónvarpsþáttinum Eyjan á Stöð 2. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×