Viðskipti erlent

Risavaxinn snertiskjár og áhersla á þrívídd

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Panos Panay, maðurinn á bakvið Surface tölvur Microsoft, kynnir til leiks Surface Studio, nýja tölvu með risavöxnum snertiskjá.
Panos Panay, maðurinn á bakvið Surface tölvur Microsoft, kynnir til leiks Surface Studio, nýja tölvu með risavöxnum snertiskjá. Nordicphotos/AFP
Microsoft hélt sinn árlega októberviðburð í gær þar sem nýjungar fyrirtækisins voru kynntar til leiks. Þær stærstu eru nýja borðtölvan Surface Studio og ný Surface Book-fartölva sem er talsvert öflugri en fyrirrennari hennar.

Surface Studio er fyrsta borðtölva Microsoft og er hún, líkt og iMac-tölvur Apple, heildstæð tölva þar sem vélbúnaðurinn er innbyggður í skjáinn. Skjárinn, og þar með tölvan, er 28 tommur og er hann snertiskjár.

Hægt verður að notast við nýtt tæki, Surface Dial, sem er eins konar hnappur sem maður leggur á skjáinn og snýr, til að mynda til að auka aðdrátt eða snúa myndum.

Kynningu á skjánum má sjá að neðan.

Tölvan er útbúin ýmist Intel i5 eða i7 örgjörva, 4GB Nvidia GeForce skjákorti, allt að 32GB vinnsluminni og 2TB hörðum diski.

Fyrir hefðbundna notkun er einnig hægt að tengja mús og lyklaborð við tölvuna. Hún virðist sérsniðin að listamönnum og hönnuðum og kostar ódýrasta gerðin um 350 þúsund krónur í forpöntun. Sú dýrasta kostar um hálfa milljón.

Önnur kynslóð fartölvulínu Microsoft, Surface Book, mun kosta á milli 170 og 270 þúsund krónur í forpöntun. Líkt og fyrri kynslóðin er hún útbúin snertiskjá. Innvols tölvunnar er hins vegar sagt mun betra. Rafhlaðan á að endast í sextán klukkustundir og kom fram á viðburðinum í gær að hún væri þrefalt öflugri en þrettán tommu MacBook Pro. 

Þrívíddaruppfærsla fyrir Windows 10

Microsoft kynnti einnig uppfærslur fyrir Windows 10, sérstaklega ætlaðar listamönnum. Þær uppfærslur munu detta inn snemma á næsta ári notendum að kostnaðarlausu.

Á meðal nýjunga er ný útgáfa af teikniforritinu Paint sem mun gera notendum kleift að búa til þrívíddarlíkön sem hægt verður að deila á meðal annars Face­book. Til að styðja við nýja útgáfu Paint munu Windows-snjallsímar geta skannað hluti í raunheimum sem svo verður hægt að flytja inn í Paint eða nýja útgáfu glæruforritsins PowerPoint. Einnig munu notendur geta virt þrívíddar­líkönin fyrir sér, kaupi þeir þar til gerð gleraugu.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×