Sport

Risabardagi í þyngdarflokki Gunnars í kvöld

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Robbie Lawler og Matt Brown í vigtuninni í gær.
Robbie Lawler og Matt Brown í vigtuninni í gær. Vísir/Getty
Það verður sannkallaður risabardagi í veltivigt UFC í kvöld þegar Matt Brown og Robbie Lawler mætast. Sigurvegarinn fær líklegast titilbardaga í veltivigtinni gegn núverandi meistara. Bardaginn er einn af fjórum bardögum sem sýndur er á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin á miðnætti.

Þeir Matt Brown og Robbie Lawler eru báðir á topp 5 á styrkleikalista UFC í veltivigtinni og því er þetta gríðarlega mikilvægur bardagi í kvöld. Okkar maður, Gunnar Nelson, er í 12. sæti í veltivigtinni eftir að hafa hækkað um eitt sæti í vikunni. Veltivigtarmeistarinn Johny Hendricks hefur haft það náðugt síðan hann tryggði sér titilinn í mars á þessu ári. Það gæti breyst í kvöld þar sem sigurvegarinn í kvöld verður líklegast næsta áskorun meistarans.

Ferlar Brown og Lawler hafa ekki verið ósvipaðir undanfarin ár. Fyrir þremur árum síðan hefði enginn búist við því að annar hvor þeirra, hvað þá báðir, væru að berjast á toppi veltivigtarinnar. Árið 2010 tapaði Brown þremur bardögum í röð á meðan Robbie Lawler var meðalmaður í Strikeforce bardagasamtökunum. Þeir hafa báðir náð að snúa döpru gengi sínu við og eru nú meðal bestu veltivigtarmanna heims. Hér fyrir neðan má sjá styrkleika og veikleika beggja bardagamanna.

Robbie Lawler

Styrkleikar

  • Er frábær í gagnhöggum þegar hann pressar andstæðinginn
  • Harða höku og erfitt að rota hann
  • Mikill rotari (19 sigrar eftir rothögg)
Veikleikar

  • Hefur alltaf átt í vandræðum með að verja lágspörk (sjá Hendricks, Manhoef og Spratt bardagana)
  • Hefur lent í vandræðum gegn sterkum glímumönnum
Matt Brown

Styrkleikar

  • Harða höku – aldrei verið rotaður
  • Setur mikla pressu á andstæðinginn sem fáir ná að standast
  • Króar andstæðinginn af við búrið
Veikleikar

  • 9 af 11 töpum hans hafa komið eftir uppgjafartök
  • Hefur átt í vandræðum með sterka glímumenn
Þrátt fyrir að báðir bardagamenn hafi lent í vandræðum gegn sterkum glímumönnum ætti það ekki að vera mikilvæg breyta í þessum bardaga. Þessi bardagi mun líklegast fara fram standandi og kæmi það undirrituðum verulega á óvart færi hann lengur en í 2. lotu.

Báðir bardagamenn vilja sækja fram þó þeir geri það á mismunandi hátt. Brown veður áfram með hrátt sparkboxið sitt og mikla pressu. Á sama tíma beitir Lawler gagnhöggum á meðan hann pressar andstæðinginn. Þetta verða því tvær óstöðvandi vélar sem munu mætast í átthyrningnum í kvöld.  Það er uppskrift af frábærum bardaga og gætum við fengið að sjá einn besta bardaga ársins í kvöld. Enginn bardagaáhugamaður má láta þennan bardaga framhjá sér fara!

Vísir og MMA Fréttir starfa saman í umfjöllun um MMA. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér.

MMA

Tengdar fréttir

Matt Brown - Heróínfíkillinn sem snéri við blaðinu

Þeir Matt Brown og Robbie Lawler mætast í aðalbardaganum á UFC on Fox 12 bardagakvöldinu á laugardaginn. Bardaginn er einn af fjórum sem sýndur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en útsendingin hefst á miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×