Lífið

Risa snjóbrettasýning á Arnarhóli í kvöld: Flytja snjó úr fjöllunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sýningin heppnaðist virkilega vel fyrir ári.
Sýningin heppnaðist virkilega vel fyrir ári. vísir

Í kvöld verður haldin risa snjóbrettaviðburður á Arnarhóli og eru það Skíðasvæði Höfuðborgarsvæðisins, Höfuðborgarstofa og Mintsnow sem standa fyrir viðburðinum.

Kvöldið er partur af Vetrarhátíð sem fór af stað með ljósaverkinu Slettireka framan á tónlistarhúsinu Hörpu. Hátíðin fer af stað klukkan sjö á föstudagskvöldið en hér er hægt að skoða ítarlega dagskrá hátíðarinnar.

„Í fyrra var fyrsta árið sem við héldum þennan viðburð sem partur af Vetrarhátíð Reykjavíkur og þetta gekk það vel að ákveðið var að þetta yrði haldið aftur í ár,“ segir Davíð Arnar Oddgeirsson, einn af skipuleggjendum viðburðarins.

„Við ætlum að flytja snjó úr fjöllunum niður á Arnarhól, einhverja fjóra trukka. Svo förum við í það að búa til svokallaða jibb braut með reilum, rörum og boxum sem koma einnig frá Bláfjöllum og ef snjómagn leyfir þá búum jafnvel til smá stökkpall. Þarna mæta færustu bretta og skíða kappar/konur landsins og sýna listir sínar. Við verðum með lifandi tónlist á staðnum ásamt einhverjum drykkjum og öðrum veitingum frá styrktaraðilum. Markmiðið er bara búa til góða sýningu og góða stemningu fyrir alla þá sem eiga leið hjá." 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×