Lífið

Risa krókódíll rölti rólega yfir golfvöll með stóran fisk upp í sér

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrikalega spaugilegt atriði.
Hrikalega spaugilegt atriði.
Með tilkomu snjallsíma missir maður í raun aldrei af neinu merkilegu. Það er ávallt einhver á svæðinu með slíkan síma og nær að fanga mögnuð augnablik.

Eitt slíkt átti sér stað á golfvelli á dögunum þegar krókódíll mætti allt í einu inn á miðja braut og gekk rólega yfir brautina. Dýrið var einnig með hádegismatinn uppi í sér en hann var með vænan fisk í kjaftinum.

Golfararnir í kringum virtust ekkert sérstaklega hræddir og náðu margir góðum myndum af atvikinu.

Myndband af atvikinu má finna á Facebook-síðu Viral Thread eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×