Sport

Rikki G missti sig í útsendingu: "Það má segja að ég hafi fengið röddina frá mömmu"

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Stórkostlegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna í gær vakti mikla athygli. En lýsing Ríkharðs Óskar Guðnasonar, sem er einnig þekktur sem Rikki G, vakti ekki síður athygli.

Þegar Atli skoraði hreinlega trylltist Ríkharð og lýsti markinu af rosalegri innlifun, og má heyra það hér að ofan. „Það má segja að ég hafi fengið röddina frá mömmu minni. Þannig að þegar ég fer upp á háa C-ið fer Vínardrengjakórinn að spyrja hvað er að frétta,“ segir hann og heldur áfram kátur:

„Satt best að segja fannst mér, í svona fimm sekúndur, eins og ég væri bara einn heima í stofu að horfa á leikinn. Svo þegar ég sá Loga Ólafsson hlæja fattaði ég að ég var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Svo spilaði það líka inn í viðbrögðin hvernig stúkan brást við. Ég hélt bara að stúkan myndi gefa sig. Þetta var bara yndislegt.“

Markið var auðvitað magnað.

„Já, ég held að margir geri sér kannski ekki alveg grein fyrir þessu. Þetta er rosalegt augnablik. Þarna er Atli að skora stórkostlegt mark fyrir Stjörnuna í Evrópukeppni. Leikurinn er gegn gríðarlega sterkum andstæðingi, við skulum athuga að Motherwell var í öðru sæti skosku úrvalsdeildarinnar í fyrra, sem er frábær árangur. Þetta er því alvöru lið. Leikurinn í gær var magnaður. Umgjörðin í Garðabænum var algjörlega til fyrirmyndar. Manni leið eins og maður væri í útlöndum að lýsa. Það er mjög gaman að fylgjast með uppganginum í Garðabæ.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×