Skoðun

Ríkisstjórnin og þinglokin

Steingrímur J. Sigfússon skrifar
Það er full þörf á að ræða stjórnmálastöðuna í samhenginu ríkisstjórn landsins og þinglokin. Við erum með ríkisstjórn í andarslitrunum sem er þó að reyna að rembast við að vera eitthvað annað og meira en hún er, jafnvel að reyna að segja Alþingi fyrir verkum. Þetta er ríkisstjórn sem sjálf ákvað síðastliðið vor að framlengja líf sitt og breyta sér í bráðabirgðastjórn til haustsins, sem er næsti bær við starfsstjórn. Þeim fjölgar auðvitað hratt sem sjá að það voru mikil mistök fyrir alla, og ekki síst stjórnarflokkana, að kjósa ekki síðastliðið vor. Það var einfaldlega ávísun á tímasóun, óvissu og upplausn að horfast ekki í augu við veruleikann strax þá.

Jafnvel stjórnarliðar spretta nú fram og segja: Það er þá alla vega réttast að kjósa strax, rjúfa þing tafarlaust og kjósa. Aðrir stjórnarliðar gera kröfur um að einstakir ráðherrar í ríkisstjórninni segi af sér.

Sem betur fer eru hverfandi líkur á því að þessi ríkisstjórn lifi af kosningarnar í október næstkomandi. Hana mun vanta bæði þingstyrk og sennilega vilja til þess að reyna að halda samstarfinu áfram. Það er vel. Við þær aðstæður þurfa forusta þingsins, forseti, formenn þingflokka og formenn flokka, einfaldlega að setjast niður og leggja algerlega sjálfstætt mat á það hvaða mál standa efnisleg rök til að afgreiða og hver á að láta bíða, áður en þingmenn halda í kosningabaráttu eða hverfa af þingi eins og metfjöldi virðist ætla að gera.

Ríkisstjórn í andarslitrunum á ekki að segja Alþingi fyrir verkum frekar en ríkisstjórnir yfirleitt og endranær eiga að kúska þingið til hlýðni. Það er þingræði á Íslandi, hér situr þingbundin ríkisstjórn.

Það er augljóst að einhver mál sem eiga að hafa réttaráhrif og koma til framkvæmda strax á haustmánuðum þarf að skoða, en það er fráleitt að eyða tíma Alþingis í önnur umdeild mál sem eiga hvort eð er ekki að taka gildi fyrr en t.d. á miðju næsta ári. Þessi ríkisstjórn hefur ekkert umboð til þess lengur að skipa fyrir um að umdeild framtíðarlöggjöf um lánasjóðinn eða mismununarkerfi fjármálaráðherra gagnvart ungu fólki á húsnæðismarkaði verði gerð að lögum.

Löskuð ríkisstjórn hægriflokkanna verður að lifa með því að sandurinn er búinn í stundaglasi hennar.



Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×