Innlent

Ríkisstjórnin kynnir aðgerðir til að greiða fyrir gerð kjarasamninga

Atli Ísleifsson skrifar
Leiðtogar stjórnarflokkanna, Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Leiðtogar stjórnarflokkanna, Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Vísir/GVA
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Bjarni Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra munu kynna aðgerðir ríkisstjórnar Íslands, ætluðum til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á almennum markaði, á blaðamannafundi í Stjórnarráðinu klukkan 10:20 í dag.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að aðgerðirnar felist meðal annars í breytingum á tekjuskatti einstaklinga og ráðstöfunum í húsnæðismálum.

„Á fundinum verður afhent fréttatilkynning sem og yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir til að greiða fyrir gerð kjarasamninga og yfirlýsing um húsnæðismál,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×