Ríkisstjórnin hrökklast frá

Fréttablađiđ Erlent 07. febrúar 2012 05:00
Emil Boc, forsćtisráđherra og leiđtogi hćgrimanna, á útleiđ eftir ţriggja ára stjórnarsetu.
Emil Boc, forsćtisráđherra og leiđtogi hćgrimanna, á útleiđ eftir ţriggja ára stjórnarsetu. nordicphotos/AFP
Ríkisstjórn Rúmeníu hefur sagt af sér vegna mikillar ólgu og mótmæla undanfarnar vikur. Aðhaldsaðgerðir að kröfu AGS og EBS eru óvinsælar.

Ríkisstjórnin í Rúmeníu hefur hrökklast frá völdum. Emil Boc, sem hefur verið forsætisráðherra síðan 2008, sagði af sér í gær.

Mikil ólga hefur verið í landinu síðustu viku vegna strangra aðhaldsaðgerða, sem fólu í sér bæði launalækkanir og skattahækkanir.

Þúsundir manna hafa tekið þátt í mótmælaaðgerðum til að krefjast afsagnar stjórnarinnar. Margir landsmenn segjast ekki sjá að stjórnin hafi haft minnstu áhyggjur af vandamálum venjulegs fólks.

Stjórnarandstaðan hrósaði sigri í gær og krafðist kosninga sem fyrst.

„Þetta er sigur fyrir þá sem hafa mótmælt úti á götum,“ sagði Crin Antonescu, sem er leiðtogi Frjálslynda flokksins. Hann sagði nú vera farna frá völdum þá ríkisstjórn sem hefur verið spilltust, vanhæfust og logið mestu síðan kommúnistaveldið leið undir lok árið 1989.

Boc forsætisráðherra varði hins vegar gerðir sínar: „Ég veit að ég hef tekið erfiðar ákvarðanir, en ávextir þeirra eru byrjaðir að sjást,“ sagði hann. „Á krepputímum er stjórnin ekki í vinsældakeppni heldur fæst hún við að bjarga landinu.“

Catalin Predoiu, dómsmálaráðherra í stjórn Bocs, verður forsætisráðherra þangað til ný stjórn hefur verið mynduð. Takist ekki að mynda nýja stjórn innan tveggja mánaða verður þingið leyst upp og boðað til kosninga.

Traian Basescu forseti hefst nú handa við að ræða við flokksleiðtoga til að kanna grundvöll til nýrrar stjórnarmyndunar.

Kjörtímabil núverandi þings rennur út í nóvember á þessu ári en mótmælendur vilja að boðað verði til kosninga sem fyrst.

Stjórnin þurfti að skera verulega niður í ríkisfjármálum eftir að hún fékk 20 milljarða evra lán frá AGS og ESB árið 2009. Það ár varð samdráttur í efnahagslífinu upp á sjö prósent. Hefði stjórnin ekki fengið þessa fjárhagsaðstoð hefði henni ekki reynst fært að greiða út laun til allra ríkisstarfsmanna.

Árið 2010 var söluskattur hækkaður úr 19 prósentum í 24 prósent og laun ríkisstarfsmanna lækkuð um fjórðung.

Kreppan er þó ekki eina vandamálið í stjórnmálum Rúmeníu, því djúpstæður fjandskapur milli stjórnar og stjórnarandstöðu birtist daglega í fjölmiðlum landsins.

Þá er Basescu forseti gagnrýndur fyrir að stilla ekki orðum sínum í hóf. Hann hefur verið fylgjandi aðhaldsaðgerðum stjórnarinnar og kröfunum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
gudsteinn@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 25. maí. 2012 23:00

Blađamađur í kókaínsmygli

Blađamađur í Kaupmannahöfn, sem skrifađi um fíkniefnaviđskipti, hefur veriđ dćmdur í sex á...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 21:40

Kattarkona í Ísrael tók ađ sér 550 ketti

Mađur frá Ísrael sótti um skilnađ frá eiginkonu sinni á dögunum. Slíkt ţykir nú varla frét...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 23:00

Eitrađ fyrir skólastúlkum

Eitrađ var fyrir 120 skólastúlkum og ţremur kennurum ţeirra í skóla í Takhar í Afganistan ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 21:14

Ótrúlegir hćfileikar hjá kisa

Kötturinn Óskar hefur heldur betur slegiđ í gegn á internetinu síđustu daga en hann er gćd...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 10:40

Brć'đralag múslima segist hafa forystu

Talning atkvćđa er sumstađar hafin í Egyptalandi en kosiđ var um nýjan forseta landsins í ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 10:36

Ţingmenn slógust í ţingsal

Ţingfundur í Úkraínu leystist upp í allsherjar áflogum í gćr. Slagsmálin brutust út á mill...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 09:14

Getnađarvarnarpilla fyrir karlmenn í sjónmáli

Vísindamenn eygja nú möguleika á ţví ađ ţróa getnađarvarnarpillu fyrir karlmenn. Genafrćđi...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:53

Mörgćs á flótta handsömuđ í Tókíó

Yfirvöld í Japan hafa loksins handsamađ mörgćs sem flúđi úr sćdýrasafni í Tókíó fyrir tvei...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 11:00

Ćtlar ekki ađ áfrýja dómi

Noregur Anders Behring Breivik mun ekki áfrýja fangelsisdómi yfir sér ef hann verđur úrsku...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:57

Hollande heimsćkir Afganistan

Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakka mćtti óvćnt í heimsókn til Afganistan í morgun...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:00

Lćknast hrađar og síđur veikir

Karlkyns bavíanar sem eru í ráđandi stöđu í sínum hóp verđa sjaldnar veikir og sár ţeirra ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 07:30

Pottur talinn brotinn í skráningu Facebook

Kćrumál streyma inn vegna vandrćđagangs viđ markađsskráningu Facebook. Hafin er rannsókn á...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 05:30

Mannréttindabrot framin á báđa bóga

Bćđi stjórnarherinn og sveitir uppreisnarmanna stunda manndráp og pyntingar í Sýrlandi. Me...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 04:00

Áhyggjur af afdrifum fjölskyldu Chen

Eldri bróđir kínverska flóttamannsins Chen Guangcheng, Chen Guangfu, hefur flúiđ heimabć s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Erlent / Ríkisstjórnin hrökklast frá