Innlent

Ríkisstjórnin fundar um yfirvinnubann flugumferðarstjóra

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Samningaviðræður hafa gengið illa á milli flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins.
Samningaviðræður hafa gengið illa á milli flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Anton/Heiða
Ríkisstjórnin fundar nú í Stjórnarráðinu. Eina málið á dagskrá er kjaradeila flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins. Líklegt er að til umræðu sé hvort setja eigi bráðabirgðalög svo stöðva megi yfirvinnubann flugumferðarstjóra sem staðið hefur yfir frá 6. apríl.

Fundurinn hófst klukkan ellefu en óeðlilegt er að ríkisstjórnin fundi á þessum tíma þar sem Alþingi er komið í sumarfríi. Þegar þing er starfandi eru ríkisstjórnarfundir yfirleitt haldnir á þriðjudögum og föstudögum.

Flugumferðarstjórar hafa átt í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins frá því í október á síðasta ári. Samningaviðræður hafa gengið illa og hafa flugumferðarstjórar sett á yfirvinnubann þannig að ekki er hægt að manna vaktir komi til veikinda.

Hefur yfirvinnubannið staðið yfir í tvo mánuði eða frá 6. apríl síðastliðnum. Á þeim tíma hefur næturumferð um Keflavíkurflugvöll legið niðri í fjórgang vegna veikinda vakthafandi flugumferðarstjóra.

Samkvæmt heimildum Vísis ber talsvert enn á milli aðila í samningaviðræðunum. Samtök atvinnulífisins halda fast við kjör samkvæmt Salek-samkomulaginu en flugumferðarstjórar hafa aðrar hugmyndir.

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, áætlar að um þrjú þúsund flug hafi þurft að breyta áætlunum sínum vegna kjaradeilunnar.

Greint hefur verið frá því í að yfirvinnubann og veikindi flugumferðarstjóra hafi kostað flugfélögin sem fljúga yfir Atlantshaf á annan milljarð króna vegna meiri brennslu eldsneytis sem stafar af því að fara óhagkvæmari flugleiðir.

Þá telja Samtök ferðaþjónustunnar óásættanlegt að ferðaþjónustunni og almannahagsmunum sé stefnt í voða með þeim aðstæðum sem yfirvinnubann flugumferðastjóra hefur skapað.


Tengdar fréttir

Meira en hinir

Yfirvinnubann flugumferðarstjóra hefur nú staðið yfir í tvo mánuði. Á þeim tíma hefur næturumferð um Leifsstöð legið niðri í fjórgang vegna "veikinda“ flug­umferðarstjóra þar sem ekki fékkst fólk til afleysinga vegna yfirvinnubannsins.

Flugumferðarstjórar vilja meira en 25%

Flugumferðarstjórn gæti flust frá Íslandi vegna tíðra launadeilna og krafna um hækkanir umfram aðra, segir framkvæmdastjóri SA. Heildarlaun flugumferðarstjóra nema um milljón að jafnaði. Hafa hafnað fjórðungshækkun á laun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×