Innlent

Ríkisstjórnin beitir sér fyrir upptöku nýrra lyfja

Sveinn Arnarsson skrifar
Finna á peninga til að nýta til upptöku nýrra lyfja á árinu
Finna á peninga til að nýta til upptöku nýrra lyfja á árinu vísir/pjetur
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum fyrir helgi að tryggja upptöku nýrra lyfja á þessu ári en ekki eru til peningar fyrir því í fjárlögum þessa árs. Formaður Krafts fagnar þessum breytingum.

Óttarr Proppé, heilbrigsðisráðherra
Forstjóri LSH, fulltrúi Sjúkratrygginga og formaður lyfjagreiðslunefndar ríkisins áttu fund með ráðherra um miðjan janúar þar sem þeir gerðu honum skýrt grein fyrir stöðunni. Ekki væru til peningar til að taka ný lyf í notkun. Fréttablaðið greindi svo frá því í síðustu viku að fjármagn væri ekki til skiptanna.

Frá árinu 2013 hafa Norðurlöndin tekið í notkun mun fleiri krabbameinslyf en við Íslendingar. Til að mynda hafa Norðmenn tekið þrefalt fleiri lyf í notkun en Ísland.

„Guð láti gott á vita, eru fyrstu viðbrögð okkar hjá Krafti við þessum tíðindum,“ sagði Ragnheiður Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.

„Með þessu útspili fer Björt framtíð langt með að efna kosningaloforð sitt sem var á þá leið að flokkurinn myndi ekki láta það gerast á sinni vakt að krabbameinssjúkt fólk fengi ekki bestu lyf sem völ væri á. Við eigum þó eftir að sjá þessa auknu fjárveitingu í höfn og því fagna ég varlega enn sem komið er.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Innleiðum mun færri lyf en nágrannaþjóðir

Þrefalt fleiri ný krabbameinslyf hafa verið tekin í notkun í Noregi, Danmörku og Svíþjóð en á Íslandi frá árinu 2013. Ekkert svigrúm er sagt í fjárlögum til að taka upp ný lyf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×