Erlent

Ríkisstjórn Obama gefst ekki upp í loftslagsmálum

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
John Kerry leggur áherslu á mikilvægi loftslagsmála.
John Kerry leggur áherslu á mikilvægi loftslagsmála. mynd/getty
John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði að ríkisstjórn Barack Obama Bandaríkjaforseta muni nýta allar leiðir til að innleiða Parísarsáttmálann sem fyrst áður en Donald Trump tekur við sem forseti Bandaríkjanna. Kerry lét þessi orð falla í heimsókn sinni í Nýja Sjálandi. Reuters greinir frá.

Kerry mun svo ferðast til Marrakesh í Marokkó til að taka þátt í umhverfisverndarráðstefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna en 200 þjóðir taka þátt í ráðstefnunni sem mun standa yfir í 2 vikur.

Sjá einnig: Sigur Trump váleg tíðindi í loftslagsmálum

Donald Trump hefur sagt að gróðurhúsaáhrifin sé skröksaga samda af Kínverjum til að ná efnahagslegu forskoti. Hann hefur heitið því að slíta aðild Bandaríkjanna að Parísarsáttmálanum. Bandaríkjamenn eru bundnir af samningnum í fjögur ár en Trump ætlar að reyna hvað hann getur til að komast hjá því að fara eftir ákvæðum samningsins.

Útblástur frá Bandaríkjunum er rétt undir 20 prósentum af heildar útblæstri og augljóst er að staða Bandaríkjanna gagnvart samningnum skiptir gríðarlegu máli. Því liggur beint við að Obama og stjórn hans þurfi að hafa hraðar hendur til að tryggja að umhverfismál séu komin í fastan farveg og að ekki verði hægt að valda stórfelldum skaða.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×