Formúla 1

Ríkisstjórn Indónesíu vill kaupa sæti hjá Manor

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Baráttan um sæti hjá Manor harðnar.
Baráttan um sæti hjá Manor harðnar. Vísir/Getty
Ríkisstjórn Indónesíu hefur í bréfi til Manor F1 liðsins boðið fjárhagslegan styrk. Ríkisstjórnin vill fá Rio Haryanto bak við stýrið og merkingar á bílana.

Haryanto endaði fjórði í stigakeppni ökumanna í GP2 mótaröðinni, sem er kappaksturinn sem flestir ökumenn keppa í áður en þeir koma í Formúlu 1.

Mikil barátta hefur verið um laus sæti í Formúlu 1 liðum fyrir næsta ár. Stoffel Vandoorne, sem vann GP2 mótaröðina lenti einungis þróunarökumannssæti hjá McLaren.

Jolyon Palmer sem varð meistari í GP2 árið 2014 náði í laust sæti hjá Lotus liðinu, sem verður Renault, eftir að hafa verið þróunarökumaður þar í eitt ár.

Í bréfinu segist ríkisstjórnin reiðubúin að greiða 15 milljónir evra til liðsins ef Haryanto á fast ökumannssæti hjá liðinu út næsta tímabil. 15 milljónir evra eru rétt rúmlega tveir milljarðar íslenskra króna.

„Eftir viðræður við Rio Haryanto og umboðsmenn hans, er okkur mikil ánægja að tilkynna að ráðuneyti æskulýðs- og íþróttamála í lýðveldinu Indónesíu vill tryggja greiðslu 15 milljóna evra, fái Rio Haryanto að keppa árið 2016 í Formúlu 1 með Manor F1 liðinu,“ segir í bréfinu.

„Greiðslurnar munu koma í skiptum fyrir auglýsingapláss á keppnisbílum og keppnisbúningum ásamt því að liðið tekur þátt í viðburðum til að auglýsa Indónesíu og tengd fyrirtæki,“ segir enn frekar í bréfinu.

Margir ökumenn vonast til þess að tryggja sér sæti hjá Manor F1. Liðið hefur enn ekki tilkynnt hvaða ökumenn munu aka fyrir liðið, bæði sætin eru laus en vonir Haryanto hafa aukist til muna.

Aðrir ökumenn sem vilja fá tækifæri hjá liðinu eru til að mynda Pascal Wehrlein, þróunarökumaður Mercedes og DTM meistari í ár. Ásamt honum vilja Will Stevens, Roberto Merhi og Alexander Rossi næla í sæti. Þrír síðastnefndu óku fyrir liðið í ár. Stevens ók í öllum keppnum tímabilsins en Merhi og Rossi skiptu þátttöku í keppnum á milli sín.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×