Ríkisstjórn fullkunnugt um fjármálaóreiðu Byrgisins í 4 ár

Vísir Innlent 31. janúar 2007 18:45
Geir H. Haarde var fjármálaráðherra þegar minnisblaðið um óreiðu í Byrginu var lagt fyrir ríkisstjórn.
Geir H. Haarde var fjármálaráðherra þegar minnisblaðið um óreiðu í Byrginu var lagt fyrir ríkisstjórn.

Ríkisstjórninni var fullkunnugt um fjármálaóreiðu Byrgisins vorið 2003. Síðan þá hefur stjórnin veitt Byrginu á annað hundrað milljónir króna. Fjölmargar viðvörunarbjöllur hafa klingt á síðustu fjórum árum án þess að við þeim hafi verið brugðist. Málið er klúður frá upphafi til enda, segir Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingar.

Fréttastofa hefur undir höndum staðfestingu á því að ríkisstjórn var fullkunnugt um fjármálaóreiðuna í Byrginu. Þetta minnisblað var lagt fram í ríkisstjórn á vormánuðum árið 2003. Trúnaður hvílir á plagginu.

Þar eru engin undanbrögð. Í minnisblaðinu stendur að rekstur Byrgisins sé slæmur, fjármálastjórn í molum, skammtímaskuldir miklar og vegna bókhaldsóreiðu sé erfitt að henda reiður á fjárhagslegum málefnum.

Það verður æ ljósar í þessu Byrgismáli að þær eru orðnar ansi margar viðvörunarbjöllurnar sem klingt hafa í eyrum þeirra sem deila út almannafé.

Í fyrsta lagi: Kolsvört skýrsla um málefni Byrgisins, gerð fyrir Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Í öðru lagi: Skýrsla vinnuhóps þriggja aðstoðarmanna utanríkis-, félagsmála- og heilbrigðisráðherra, sama ár. Í þriðja lagi: Minnisblaðið um bókhaldsóreiðuna sem lagt var fyrir ríkisstjórn vorið 2003. Í fjórða lagi: Byrgið varð gjaldþrota árið 2003. Þetta var yfirvöldum fullkunnugt um eins og fram kemur í tölvupósti frá aðstoðarmanni utanríkisráðherra í febrúar það ár, en þar segir:

"... þar sem vitað er að fjármagn það sem er á fjárlögum verður að fara í gjaldþrotið þá liggur fyrir að þeir þurfa fjármagn í hinn daglega rekstur ..."

Ríkisendurskoðun leyfði að framlag til Byrgisins færi á nýja kennitölu - færi það sannanlega til rekstrarins. Tölvupóstur þáverandi aðstoðarmanns utanríkisráðherra sýnir svo ekki verði um villst að vitað var að ríkisframlag fór í gjaldþrotið. Þá greiddi Reykjavíkurborg líka styrki inn á tvær kennitölur.

Í fimmta lagi: Byrgið hefur frá árinu 2003 einungis skilað einum - ófullnægjandi - ársreikningi til ríkisskattstjóra. Í sjötta lagi: 16. janúar 2003 sendi geðlæknir á höfuðborgarsvæðinu bréf til Landlæknisembættisins þar sem hann segir frá því að þrjár konur séu óléttar í Byrginu og að barnsfeðurnir muni vera starfsmenn staðarins.

Jóhanna Sigurðardóttir segir þetta mál allt klúður frá upphafi til enda og nú flýi allir undan ábyrgð. Hún segir það ríkisstjórnin en ekki fjárlaganefnd sem hafi ákveðið framlög til Byrgisins allt frá 2002. Síðan þá hafi ríkisstjórnin, í stað þess að senda málið til Ríkisendurskoðunar, ausið áfram fé í Byrgið.

Síðustu fimm ár hefur borgin styrkt Byrgið um tæpar 18 milljónir króna, meðal annars á meðan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var borgarstjóri. Í ræðu um síðustu helgi sagði hún að stjórnvöld hefðu brugðist í eftirlitshlutverki sínu í Byrgismálinu. Aðspurð hvort Ingibjörg Sólrún beri ekki líka ábyrgð, svarar Jóhanna, að hún hafi ekki vitað af skýrslunni um bókhaldsóreiðuna.

Í febrúar 2003 sendir Birkir Jón Jónsson, þáverandi aðstoðarmaður félagsmálaráðherra og núverandi formaður fjárlaganefndar, tölvupóst. Þar grillir líklega í kjarnann í þessari hörmungarsögu um fíkla í Byrginu og andvaraleysi yfirvalda.

"Ef starfsemi Byrgisins á alfarið að fara eftir lögum um heilbrigðisþjónustu þá mun kostnaðurinn verða margfælt hærri en nú er áætlað."


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 25. maí. 2012 16:55

Ólafur og Þóra jöfn samkvæmt nýrri könnun MMR

Nákvæmlega sami fjöldi myndi kjósa Þóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:33

Segir aðgerðirnar bitna mest á höfuðborgarsvæðinu

"Þessar aðgerðir bitna mest á höfuðborgarsvæðinu, meirihluti þeirra sem láta af störfum er...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:37

Hvetur til áhlaups á Landsbankann

Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, hvetur íbúa á Fáskrúðsfirði og Esk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:30

Safna hjólum fyrir efnaminni börn

Hjól sem standa óhreyfð inni í bílskúr geta nú öðlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiðakep...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:47

Grunaðir innbrotsþjófar úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:39

Hlakkar til að hefja störf á nýjum vettvangi

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segist hlakka til að hefja störf hjá OPUS lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 14:21

Björn Valur: "Það er eitthvað súrt við þetta“

"Þetta slær menn,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstrihreyfingari...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:25

Óupplýst hver stóð á bak við stærsta fíkniefnainnflutning síðasta árs

Enn er óupplýst hverjir stóðu að innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta þúsu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:23

Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrði

Rúnar Bjarki Ríkharðsson, sem fékk einn þyngsta dóm sem fallið hefur hér á landi, fyrir mo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:38

Geir Haarde kominn í nýja vinnu

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem r...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:27

Með loftbyssu og skotfæri í Leifsstöð

Karlmaður var með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrra...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:16

Borgin kaupir dráttarvélar fyrir 160 milljónir

Reykjavíkurborg áformar að kaupa dráttarvélar fyrir 160 milljónir króna á næstunni. Bréf f...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 10:28

Bjóða upp á nettengingu í háloftunum

Þeir sem fljúga með flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta verið netten...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:55

Fundu fíkniefni á farþega

Lögreglan á Akranesi stöðvaði í gærkvöldi bifreið sem var á ferð við bæinn. Þrír menn reyn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:59

Dómur kveðinn upp í stóru fíkniefnamáli

Dómur verður kveðinn upp í einu stærsta fíkniefnamáli síðasta árs klukkan korter yfir níu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:40

Krakkar í Álfhólsskóla komu færandi hendi

Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu með gömul hjól og gáfu í söfnun Barn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:26

Yfirlögregluþjónn kærir falsaða undirskrift á lista Ástþórs

Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, hefur kært fölsun á undirskrift sinni á m...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:28

Segir eðlilegt að lögreglan rannsaki framboðslista

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hefur skilað hátt í 200 undirskriftum til viðbótar í ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:10

Ákærður fyrir hættulega líkamsárás

Tuttugu og átta ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkam...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:30

Tæplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson, höfuðpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs ósk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:18

Ólafur Ragnar tekur forystu

Stuðningur við áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta hefur aukist ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:00

Vinnuhópur meti afnám hafta

Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópu tilkynntu í gær um myndun sameiginlegs vinnu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tilraun til hættulegrar árásar

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herði Þráinssyni, fyrir fjöl...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tugir mála á leið til sérstaks saksóknara

Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viðbótar eru ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:00

Reglur hertar vegna Annþórs og Barkar

Öryggisgangur á Litla-Hrauni verður rýmdur fyrir tvo fanga sem grunaðir eru um manndráp áð...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:30

Málflutningur í september

Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Kosið um sameiningu í haust

Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu greiða atkvæði um það í haust hvort sameina eigi sveita...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Hefta vind og binda kolefni

Vísbendingar eru um að aukinn trjágróður og byggð innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregi...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Herferðin kom til af nauðsyn

Lækkun á veiðigjaldi frá því sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. F...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir

Landssamband bakarameistara, LABAK, safnaði 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsókn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Boðar skoðun á innra skipulagi embættisins

Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verða endurskoðaðar í kjölfar þess að embættið kær...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 milljónir gegn glæpastarfsemi

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis beinir þeim tilmælum til innanríkisráðherra að und...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 missa vinnuna í hagræðingu

Starfsmönnum Landsbanka Íslands fækkar um 50 um mánaðamótin vegna hagræðingaraðgerða. Átta...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:30

Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun

Wow air hefur kært til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á því a...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:00

Segir jafnréttismál í ólestri

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina ekki ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:34

Verjandi líkti al-Thani málinu við mál Mladic

Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöðu sakborninga þess ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:30

Björk fékk Webby verðlaunin

Björk Guðmundsdóttur voru veitt Webby verðlaunin í vikunni í flokknum listamaður ársins. ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:28

Búinn að skila meðmælendalista

„Við erum búin að skila meðmælendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóð...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:30

Íslendingar duga ekki á Drekasvæðið - gefast upp

Útgerðarmaðurinn sem er á leið í olíuleit á Drekasvæðinu segir að ekki þýði lengur að hafa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:00

"Menntaskólakerfið er undirlagt af kannabisneyslu"

Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á k...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:56

Jóhanna og Füle ræddu gjaldeyrishöftin

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Stefan Füle, framkvæmdastjóra ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:30

Catalina lenti á Reykjavíkurflugvelli

Catalina flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, lenti á R...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:49

Verjandi Barkar furðar sig á umfjöllun fjölmiðla

Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunaður er um að hafa banað mann á Litla Hrauni 17. maí ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:45

Íhuga að hætta við komu skemmtiferðaskips vegna tollalaga

Franskt félag íhugar að hætta við fyrirhugaða siglingu skemmtiferðaskips við Íslandsstrend...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:30

Fjölskyldufyrirtæki tapaði gengismáli

Skuldastaða yfir þúsund fyrirtækja er í uppnámi eftir að Hæstiréttur sýknaði Lýsingu nú sí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 17:58

Hæstiréttur sýknar Fylki

Hæstiréttur sýknaði í dag Íþróttafélagið Fylkir af kröfum Sveins Rafns Eiðssonar en hann s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:58

Byssumaður reyndist vera leikari

Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggð á misskilningi. Þannig var því t.d. farið ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:42

Lögmenn Annþórs ósáttir við framgang lögreglu

Lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem grunaður er um að hafa banað Sigurði Hólm Sigurð...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:17

Í aðgerð vegna fótbrots - konan hryggbrotnaði

Karlmaðurinn, sem féll niður um 40 metra þegar að brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig í dag,...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:36

Könnuðust ekki við að styðja Ástþór

Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi hefur framkvæmt hefur leitt í ljós að ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Ríkisstjórn fullkunnugt um fjármálaóreiðu Byrgisins í 4 ár