Innlent

Ríkislögreglustjóri varar við tölvuvírus

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Tölvuóværan læsir öllum gögnum tölvunnar og krefst lausnargjalds til að fá gögnunum aflæst.
Tölvuóværan læsir öllum gögnum tölvunnar og krefst lausnargjalds til að fá gögnunum aflæst. vísir/getty
Ríkislögreglustjóri vekur athygli á upplýsingasíðu um svokallað „ransomware“ sem er tölvuóværa (malware) sem læsir öllum gögnum tölvunnar. Hún krefst síðan lausnargjalds til að fá gögnunum aflæst.

Á vef lögreglunnar segir að þessi tegund af tölvubrotum sé stórt vandamál í Evrópu og að tölvuþrjótar hafi herjað á einstaklinga, fyrirtæki og jafnvel opinberar stofnanir.

„Dulkóðunin í þessari óværu er mjög sterk og hefur það reynst nærri ómögulegt að brjóta hana án þess að fá lykil frá þeim sem stjórnar óværunni.  Því eru allar líkur til þess að þeir sem verða fyrir slíku smiti glati gögnum sínum að eilífu,” segir í tilkynningu ríkislögreglustjóra.

Þá segir að hollensk lögregluyfirvöld, í samstarfi við Europol, Intel Security og Kaspersky Lab hafi sett á fót upplýsingasíðu um þessa tegund óværa. Þar séu að finna gagnlegar upplýsingar sem verði fyrir barðinu á slíkri óværu sem og fyrirbyggjandi aðgerðir, sem sé mikilvægasti liðurinn til þess að verjast þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×