Innlent

Ríkislögreglustjóri bíður svars frá Noregi

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Yfirlögregluþjónn segir ríkislögreglustjóra undirbúa greinargerð til ráðherra vegna kaupa á vopnum sem aukin þörf sé fyrir.
Yfirlögregluþjónn segir ríkislögreglustjóra undirbúa greinargerð til ráðherra vegna kaupa á vopnum sem aukin þörf sé fyrir. Fréttablaðið/GVA
Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, segir nýja stöðu komna upp eftir að Landhelgisgæslan ákvað að skila 250 hríðskotabyssum til Noregs.

Að sögn Jóns Bjartmarz er ekki að sinni gert ráð fyrir fjárveitingum til kaupa á vopnunum.

„Það breytir því ekki að þörf lögreglunnar á vopnum er óbreytt og hefur í reynd aukist og er embættið að undirbúa greinargerð til ráðherra um kaup á búnaði, þar á meðal vopnum. Svari Norðmenn bréfi ríkislögreglustjóra um útvegun á vopnum og öðrum búnaði sem spurt var um í bréfinu verður það skoðað í ljósi svara þeirra,“ segir Jón í svari til Fréttablaðsins.

Jón F. Bjartmarz Yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra.Fréttablaðið/Vilhelm
Fram kemur í svari Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, að 150 af byssunum 250 hafi verið ætlaðar ríkislögreglustjóra „samkvæmt beiðni hans til norskra yfirvalda“. Hinar byssurnar hafi verið til endurnýjunar og viðhalds fyrir Landhelgisgæsluna. Vegna fjárskorts líði oft langur tími á milli þess að vopn og tækjakostur Landhelgisgæslunnar sé endurnýjaður.

„Landhelgisgæslan hefur ekki tekið ákvörðun um hvernig endurnýjun á vopnakostinum verður háttað. Það er verkefni sem bíður betri tíma og er ekki talið á meðal forgangsmála í rekstrinum. Önnur verkefni, svo sem endurnýjun björgunarþyrlna og bættur rekstrargrundvöllur skipa, eru mun brýnni,“ segir Hrafnhildur.

Að sögn Hrafnhildar flugu Norðmenn með vopnin hingað til lands án kostnaðar fyrir Landhelgisgæsluna og enginn kostnaður sé vegna geymslu þeirra. „Verður haft samráð við þá um flutning vopnanna til Noregs við fyrstu hentugleika,“ segir hún.

Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar
Þá upplýsir upplýsingafulltrúinn að Landhelgisgæslan hafi hingað til ekki þurft að greiða fyrir þau vopn sem hún hafi fengið frá Norðmönnum og öðrum nágrannaþjóðum á undanförnum árum og áratugum.

„Raunar er nær öll vopnaeign Landhelgisgæslunnar, 90 prósent, gjafir frá nágrannaþjóðunum sem tekin hafa verið úr notkun hjá þeim. Nú síðast árið 2013 bárust 10 vopn að gjöf frá Norðmönnum. Gert var ráð fyrir að það sama ætti við í þessu tilfelli,“ segir Hrafnhildur.

Aðspurð hvort Norðmenn geri nú kröfu um greiðslu vegna þeirra vopna sem áður voru talin gjafir svarar Hrafnhildur: „Nei, það hefur ekki komið til tals.“

Tilfelli þar sem sérsveitin hefur vopnast 2007-2013

Ár          Tilvik

2007       53

2008       48

2009       68

2010       63

2011       63

2012       72

2013       83

Heimild: Ríkislögreglustjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×