Sport

Ríkir nágrannar Pacquiao þoldu ekki að sjá fátæklinga

Maður fólksins. Manny fagnar hér með sínum fólki eftir að hafa rotað Chris Algieri um síðustu helgi.
Maður fólksins. Manny fagnar hér með sínum fólki eftir að hafa rotað Chris Algieri um síðustu helgi. vísir/afp
Boxarinn Manny Pacquiao ætlar að selja húsið sitt þar sem nágrannar hans þola ekki að sjá fátækt fólk í húsinu hans.

Pacquiao er vinsælasti íþróttamaður Fillipseyja og hefur efnast vel á hnefaleikaferli sínum. Hann hefur líka verið duglegur að hjálpa þeim sem minna mega sín.

Fátæklingar standa oft í röðum fyrir utan hús Pacquiao í von um fjárhagsaðstoð. Hann leggur sig í líma við að hjálpa þeim öllum.

"Ég er einfaldur maður með einfalt hjarta. Ég er maður fólksins, einfaldur maður og það mun aldrei breytast," sagði Pacquiao en hann tekur kvörtunum nágrannanna ekki illa.

Pacquiao ætlar að finna sér nýtt hús í öðru hverfi þar sem hann getur tekið á móti enn fleira fólki.

Húsið sem hann býr í núna er til sölu á tæplega 1,2 milljarða króna ef einhver hefur áhuga.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×