Innlent

Ríkið vill þjóðarleikvang í Laugardal

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Nýr Laugardalsvöllur samkvæmt teikningum Yrki arkitekta.
Nýr Laugardalsvöllur samkvæmt teikningum Yrki arkitekta.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Reykjavíkurborg og Knattspyrnusamband Íslands munu veita alls 21 milljón króna til að fullkanna rekstrargrundvöll fjölnota íþróttaleikvangs, bera saman mismunandi útfærslur og vinna frumhönnun leikvangsins ásamt því að vinna kostnaðargreiningu vegna framkvæmda.

Hver leggur sjö milljónir í verkefnið. Þetta kom fram á borgarráðsfundi á fimmtudag þar sem Degi B. Eggertssyni var veitt umboð til að skrifa undir viljayfirlýsingu fyrir hönd borgarinnar.

Fram hefur komið að KSÍ vilji kaupa völlinn og hefja samtal um uppbyggingu innan núverandi byggingarreits hans án fjárhagslegrar aðkomu borgarinnar.

KSÍ hefur unnið hagkvæmni­athugun um uppbyggingu fjölnota leikvangs þar sem markmiðið er að bæta völlinn sem þjóðarleikvang í knattspyrnu, auka nýtingu hans, ásamt því að styrkja nærumhverfi. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, Dagur og Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hafa því ákveðið að veita styrk til undirbúnings á verkefninu.

KSÍ hefur skuldbundið sig til að bera ábyrgð á framvindu verkefnisins og leggja fram verkefnisáætlun til samþykktar fyrir aðila samkomulagsins. Verkefnisáætlun skal gera ráð fyrir að næsta verkþætti verði lokið eigi síðar en 15. janúar 2017. Þegar niðurstöður liggja fyrir munu aðilar samkomulagsins taka afstöðu til framhalds verkefnisins og raunhæfni.

Afstaða mennta- og menningarmálaráðuneytis til frekari þátttöku mun taka mið af því að Laugardalsvöllur verði skilgreindur sem þjóðarleikvangur. Borgin hefur lýst sig reiðubúna að koma að nauðsynlegri greiningu og skipulagsvinnu sem tengist þróun fjölnota íþróttaleikvangs með vísan til erindis Knattspyrnusambands Íslands frá 10. mars 2016, samþykktar borgarráðs frá 15. september og þeirra fyrirvara sem þar koma fram.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×