Viðskipti innlent

Ríkið hugsanlega skaðabótaskylt vegna verðtryggðu lánanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lánið sem er fyrir dómstólum var tekið hjá Landsbanka Íslands.
Lánið sem er fyrir dómstólum var tekið hjá Landsbanka Íslands.
Landsbankinn lítur svo á að lög um neytendalán séu mjög afdráttarlaus um að ekki beri að taka tillit til breytinga á verðlagi við útreikning á áætluðum kostnaði lántaka þegar verðtryggð lán eru tekin.

Eitt af þeim álitaefnum sem mun reyna á fyrir íslenskum dómstólum á næstunni er hvort Evróputilskipun um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi neytendalán hafi verið rétt innleidd í íslenskan rétt. Þetta segir í tilkynningu sem Landsbanki Íslands sendi frá sér vegna niðurstöðu EFTA dómstólsins í morgun. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi mátt miðað við núll prósent verðbólgu þegar heildarlántökukostnaður og árleg hlutfallstala kostnaðar er reiknað í lánaskilmálum.

Verði niðurstaða íslenskra dómstóla sú að tilskipunin hafi ekki verið rétt innleidd kann sú spurning að vakna hvort íslenska ríkið sé skaðabótaskylt gagnvart samningsaðilum sem hafa gert með sér lánasamninga um verðtryggð lán, neytendum og eftir atvikum lánastofnunum.

Landsbankinn segir einnig að af áliti EFTA-dómstólsins megi einnig ráða að það skipti máli hvort lántaki vissi eða mátti vita af áhrifum verðbólgu á lántökuna ef ekki var gert ráð fyrir henni í kostnaðaráætlun láns. Þannig eigi eftir að reyna á ýmis sjónarmið fyrir íslenskum dómstólum.

Loks segir Landsbankinn, líkt og Íslandsbanki og Arion, að bankinn hafi farið yfir hugsanleg áhrif þess ef bankinn yrði talinn bera ábyrgð á því að ákvæði um verðtryggingu yrðu ekki talin gild eða ef upplýsingagjöf í tengslum við veitingu verðtryggðra lána væri talin ófullnægjandi. „Slík niðurstaða væri til þess fallin að lækka virði þess hluta verðtryggðs lánasafns bankans sem væri háð einhverjum slíkum ágöllum. Eiginfjárhlutfall bankans er hins vegar afar hátt og myndi bankinn áfram vera vel yfir eiginfjárkröfu Fjármálaeftirlitsins þrátt fyrir slíka niðurstöðu,“ segir Landsbankinn.


Tengdar fréttir

Máttu ekki miða við núll prósent verðbólgu

Þegar lánssamningur er bundinn við vísitölu neysluverðs, samrýmist það ekki tilskipun 87/102/EBE að miðað sé við 0% verðbólgu við útreikning á heildarlántökukostnaði og árlegri hlutfallstölu kostnaðar ef þekkt verðbólgustig á lántökudegi er ekki 0%. Þetta segir í ráðgefandi áliti EFTA-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×