Ríkið gæti þurft að leggja meiri fjármuni til LÍN Randver Kári Randversson skrifar 28. júlí 2014 13:32 Skrifstofa LÍN á Höfðatorgi. Vísir/E.Ól.
Ársskýrsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) fyrir skólaárið 2012-2013 hefur verið birt á heimasíðu LÍN. Þar kemur fram að heildarútlán námu 16,8 milljörðum kr., greiðendur námslána voru 33.321 og alls fengu 12.236 námsmenn afgreitt námslán vegna skólaársins. Að óbreyttu má búast við að afskriftir fari hækkandi og að ríkið þurfi miðað við sömu þróun að leggja meiri fjármuni til LÍN á komandi árum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá LÍN. Samkvæmt nýlegri skýrslu Summu Ráðgjafar, um fjárhagslegar áhættur LÍN hefur lántökum hjá LÍN fjölgað töluvert, námstími lengst, heildarfjárhæð lána hækkað og endurgreiðslutími lengst. Í lok árs 2013 var nafnvirði útlána LÍN 202 milljarðar kr. Útlán hafa vaxið um 73% frá árinu 2008. Núvirði lánanna er nokkuð lægra en nafnvirði þeirra eða um 129 milljarða kr. sem nemur 64% nafnvirðisins. Það sýnir jafnframt innbyggðan opinberan stuðning við námsmenn miðað við fyrirkomulag námslána. Afföll námslána aukast í réttu hlutfalli við upphæð lánanna og lengd endurgreiðslutímans. Þannig er t.d. áætlað að tæplega helmings eftirgjöf felist í námsláni á bilinu 7,5–10 milljónir kr. Í ársskýrslunni er sundurliðun á námslánum eftir kyni, aldri og fjölda. Þá eru dæmi um áætlaðan fjölda ára sem tekur að greiða niður námslán, stöðu lánsins við hefðbundinn lífeyristökualdur og áætlaðan aldur greiðanda við uppgreiðslu námsláns. Meðallán námsmanna, sem enn eru í námi, námu 4 milljónum kr. í lok árs 2013 en 12,5% þeirra sem eru enn í námi skulda yfir 12,5 milljónir kr. Dæmi eru um skuldir yfir 30 milljónir kr., en námsmaður með svo háa skuld þyrfti að hafa um 23 milljónir kr. í árstekjur frá námslokum til að auðnast að greiða lánin fyrir 67 ára aldur. Til samanburðar þyrfti námsmaður sem lýkur námi um þrítugt með 7,5 milljóna kr. námslánaskuld að hafa 5,5 milljónir kr. í árstekjur til að greiða upp námslán sín fyrir 67 ára aldur.
Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Sjá meira