Erlent

Ríki ESB tekið við mun færri flóttamönnum en þau lofuðu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ríki Evrópusambandsins hafa aðeins tekið við 8 prósentum af þeim heildarfjölda flóttamanna sem þau skuldbundu sig til að taka á móti samkvæmt áætlun sem gerð var árið 2015. Flóttamennirnir áttu að koma úr óheilsusamlegum og yfirfullum flóttamannabúðum í Grikklandi og á Ítalíu og var stefnt að því að flytja alls 160 þúsund manns úr búðunum.

Samkvæmt umfjöllun um málið á vef Guardian hafa aðeins 13546 manns verið fluttir úr búðunum, 3936 frá Ítalíu og 9610 frá Grikklandi, og aðeins tvö lönd hafa tekið á móti öllum þeim flóttamönnum sem þau sögðust ætla að taka við, það er Finnland og Malta. Þegar áætlunin var samþykkt árið 2015 var gert ráð fyrir að í september á þessu ári yrði lokið við að flytja flóttamennina úr búðunum og til ríkja ESB.

Á blaðamannafundi í Brussel í dag varaði Dimitris Avramopoulos, framkvæmdastjóri innflytjendamála hjá ESB, við því að ríkin gætu sætt refsingum fyrir að standa ekki við skuldbindingar sínar, meðal með háum dagsektum sem sambandi gæti lagt á þau. Þá sagði Avramopoulos að áætlunin myndi halda áfram ef markmiðunum væri ekki náð í september.

„Ég vil vera alveg skýr. Það eru engar afsakanir fyrir aðildarríkin að standa ekki við sitt. Það er hægt að flytja alla þessa flóttamenn frá Ítalíu og Grikklandi fyrir september. Þetta stendur bara og fellur með pólítískum vilja aðildarríkjanna,“ sagði framkvæmdastjórinn.

Þrátt fyrir að aldrei hafi fleiri flóttamenn verið fluttir úr búðunum en í síðasta mánuði eru tölurnar þó enn langt undir þeim viðmiðum sem sambandið setti sér upphaflega, það er að flytja 3000 manns á mánuði.

Ungverjaland, Austurríki og Pólland hafa neitað að taka þátt í áætluninni og Tékkland, Búlgaría, Króatía og Slóvakía taka ekki þátt nema að takmörkuðu leyti. Þá hefur Bretland einnig ákveðið að taka ekki þátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×