Glamour

Rihanna sýnir nýjust línu sína á tískuvikunni í París

Ritstjórn skrifar
Loksins hefur verið tilkynnt hvar Rihanna muni sýna vorlínu sína í samstarfi við Puma. Tískusýningin mun fara fram í París að þessu sinni en í febrúar sýndi hún haustlínuna í New York. 

Samstarf Puma og Rihanna hefur vakið mikla lukku en fyrsta línan fór á sölu fyrr í mánuðinum og seldist hratt upp. 

Það verður spennandi og forvitnilegt að sjá hvað söngkonan mun bjóða upp á fyrir sumarið 2017 en það verður eflaust eitthvað ferskt og nýtt. 






×