Sport

Rihanna sagði CBS að fokka sér

Rihanna er ekkert í sérstöku stuði þessa dagana.
Rihanna er ekkert í sérstöku stuði þessa dagana. vísir/getty
Sjónvarpsstöðin CBS hefur slitið samstarfi við söngkonuna Rihanna eftir að hún sagði stöðinni að „fokka sér."

CBS sendir út fimmtudagsleikina í NFL-deildinni og hún syngur lagið sem einkennir dagskrána. CBS ákvað að sleppa því að nota lagið síðasta fimmtudag þar sem umfjöllunin var öll á alvarlegu nótunum vegna Ray Rice sem rotaði eiginkonu sína.

CBS fannst lagið ekki setja rétta tóninn fyrir útsendinguna og sleppti því að spila það. Það var söngkonan ósátt við.

„Þið slepptuð laginu mínu síðasta fimmtudag og ætlið nú að spila það næsta fimmtudag? Nei, fokkið ykkur! Þið eruð sorglegir að refsa mér svona," skrifaði Rihanna á Twitter.

Þessi ummæli fóru illa í yfirmenn sjónvarpsstöðvarinnar sem eru hættir við að spila lagið yfir höfuð og hafa slitið öllu samstarfi við hana.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×