Glamour

Rihanna neglir hvert vetrar trendið á eftir öðru

Ritstjórn skrifar
Myndir/Getty
Rihanna er ein smekklegasta stjarnan í heiminum í dag. Í hvert skiptið sem hún stígur út úr húsi klæðist hún nýjum og spennandi trendum sem að allir tískuáhugamenn elska að fylgjast með. 

Upp á síðkastið hefur hún verið að taka vetrar trendin með trompi eins og má sjá á myndunum hér fyrir neðan. 

Leðurbuxur og hljómsveitabolur er klassísk samsetning en Rihanna hafði klippt bolinn til svo að hann hangi fram af öxlunum.
Fallegur hvítur kjóll sem er svipaður í sniði og jakki nema með berar axlir.
Útvíðar hlébarðabuxur við dökkbláann topp. Áhættusöm samsetning sem virkar vel.
Rihanna gerir pils yfir kjóla trendið á sinn eigin hátt. Gallapils yfir síða skyrtu við flauelsskó.
Oversized gallajakki hentar vel á haustin.
Alltaf sami töffarinn. Víðar gallabuxur við hvíta peysu sem hefur verið dregin niður fyrir axlirnar.





×