Lífið

Rihanna hefur góð áhrif á Puma

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Rihanna er listrænn stjórnandi hjá Puma
Rihanna er listrænn stjórnandi hjá Puma
Nú þegar Rihanna hefur tekið við sem listrænn stjórnandi kvennadeildar íþróttafataframleiðandans Puma hefur salan aukist um 7,6 prósent.

Aukningin kemur sér vel þar sem Puma eyðir háum upphæðum til þess að fá að vinna með Rihönnu. Forstjóri fyrirtækisins segir þennan vöxt sjást mest hjá skódeild fyrirtækisins, en þar hafa verið að endurnýjaðar klassískar vörulínur nokkrum nýjum hefur verið bætt við. 

Tekur sig vel út í Puma fötum
Eigin lína Rihönnu kemur ekki í búðir fyrr en á næsta ári en myndir hafa nú þegar birst sem gefa nasasjón af línunni og bíða margir aðdáendur spenntir.

Puma hefur verið lengi að koma sér um borð á íþróttavöru-trendið en þetta virðist allt vera að koma hjá fyrirtækinu – hægt en örugglega.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton og Rihanna að hittast

Formúlu 1 ökuþórinn Lewis Hamilton hefur verið að hitta söngkonuna Rihanna undanfarna mánuði en parið hefur haldið því leyndu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×