Glamour

Rihanna gefur út línu af snyrtivörum

Ritstjórn skrifar
Stórstjarnan Rihanna mun hefja sölu á snyrtivörum í haust. Snyrtivörulínan hennar mun bera heitið Fenty Beauty. Nú þegar hefur hún gefið út nokkrar skólínur og fatalínu svo það virðist sem að Rihanna ætli sér að takast á við tískuheiminn allan eins og hann leggur sig. 

Þetta var tilkynnt á Instagram síðu Fenty Beauty. Lítið er vitað um línuna nema það að á meðal þess sem verður til sölu er varalitur sem má sjá hér fyrir neðan. Líklegt er að snyrtivörurnar verði aðeins fáanlegar í Sephora.  

Það verður spennandi að fylgjast með Instagramsíðu Fenty Beauty þar sem líklega verður sýnt frá fleiri vörum sem fara á sölu. 

#FentyBeauty by #Rihanna dropping this fall. Stay tuned for more.

A post shared by Fenty Beauty by Rihanna (@fentybeautycosmetics) on






×