Tónlist

Rihanna gefur aðdáendum sínum nýjustu plötuna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rihanna gjafmild.
Rihanna gjafmild. vísir/getty
Tónlistarkonan Rihanna gaf í dag út nýja plötu á streymisveitunni Tital og ætlar hún að gefa aðdáendum sínum plötuna.

Þetta kemur fram á Twitter-síðu hennar í dag en þar greinir hún frá sérstökum kóða sem aðdáendur hennar slá inn og fá þá plötuna gefins.

Nýja platan ber nafnið ANTI en um er að ræða áttundu plötuna frá listamanninum síðan 2005. Hún sló fyrst í gegn árið 2007 þegar lagið Umbrella kom út. Hér má hlusta á plötuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×