Glamour

Rihanna er komin með dredda

Ritstjórn skrifar
Ef það er einhver sem getur verið með dredda, þá er það Rihanna.
Ef það er einhver sem getur verið með dredda, þá er það Rihanna. Mynd/Instagram Skjáskot
Rihanna er óhrædd við breytingar og við að vera öðruvísi. Hún syndir á móti straumnum og prófar hiklaust nýja hluti sem er ekki hægt að kalla "mainstream" í hinu vestrænasamfélagi. Hingað til hefur hún þó að mestu verið með sítt slegið hár í mismunandi litum.

Að þessu sinni er hún komin með þykka dredda í hárið. Söngkonan er frá eyjunni Barbados í Karabíska hafinu svo að hún hefur ekki langt að sækja innblásturinn.

Hún birti myndir af sér á samfélagsmiðlum með nýju hárgreiðsluna og það verður að segjast að hún lítur ótrúlega vel út með hana.

Mynd/Skjáskot

buffalo $oldier

A photo posted by badgalriri (@badgalriri) on






×