Fótbolti

Rifust um hver ætti að taka vítið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ótrúleg uppákoma átti sér stað í leik Southampton og Sparta Prag í Evrópudeildinni í gær.

Southampton fékk víti snemma leiks sem Charlie Austin fiskaði. Hann ætlaði svo að taka vítið sjálfur.

Liðsfélagi hans, Dusan Tadic, var ekki alveg á því enda var búið að útnefna hann sem vítaskyttu. Austin nennti samt ekki að hlusta á hann.

Þeir rifust síðan eins og smákrakkar um það hver ætti að taka vítið. Austin var frekari og steig á punktinn undir aukinni pressu eftir frekjuna.

Sem betur fer fyrir Austin skoraði hann úr vítinu. Þeir sögðu síðan eftir leikinn að þeir væru búnir að sættast.

Þessa uppákomu má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×