Innlent

Rifu niður auglýsingar Svíþjóðardemókrata

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Fjöldi fólks fyllti lestarstöðina
Fjöldi fólks fyllti lestarstöðina Skjáskot
Fjöldi mótmælenda ruddist inn í neðanjarðarlestarstað í Östermalm í Stokkhólmi í kvöld og reif niður umdeildar auglýsingar Svíþjóðardemókrata sem beinast gegn innflytjendum, betlurum og erlendum glæpagengjum.

Um 200 manns voru saman komnir á lestarstöðinni til að mótmæla skilaboðum Svíþjóðardemókrata.

Ríkissaksóknari Svíþjóðar hefur hafið rannsókn á því hvort Svíþjóðardemókratar hafi gerst sekir um hatursáróður eftir auglýsingaherferð þeirra nú um helgina.

Svíþjóðardemókratar komu upp auglýsingum í neðanjarðarlestarstöðvum í Stokkhólmi þar sem ferðamenn eru beðnir afsökunar á fjölda betlara í borginni.

Í herferðinni eru meðal annars birtar myndir af fólki sofandi á götunni og fullyrt er að allt sé í upplausn í Svíþjóð en ríkisstjórnin aðhafist ekki neitt.

Eitt af aðalstefnumálum Svíþjóðardemókrata er að draga úr komu innflytjenda og flóttafólks til Svíþjóðar. En þeim hefur verið legið á hálsi að vera öfgasinnaður og rasískur stjórnmálaflokkur.

Flokkurinn hefur sótt í sig veðrið undanfarin ár en hann vann tólf prósent atkvæða í sænsku þingkosningunum í fyrra.  Í nýjustu skoðanakönnunum má sjá að Svíþjóðardemókratar eru rétt á hælum Jafnaðarmannaflokksins. Jafnaðarmenn mælast með um 24 prósenta fylgi og Svíþjóðardemókratar með 23 prósent. Þá er það í fyrsta skiptið sem Svíþjóðardemókratar komast fram úr hægri flokknum Moderatarna sem mælist með um 20 prósent fylgi.

Svona litu auglýsingarnar út áður en þær voru rifnar niður.AFP

Sååååjaaaa fuck sd

Posted by Shimen Reshid Mela on Tuesday, August 4, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×