Erlent

Rifrildi á skólalóð frekar en pólitískar rökræður

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Donald Trump og Ted Cruz í kappræðunum í nótt.
Donald Trump og Ted Cruz í kappræðunum í nótt. vísir/getty
Donald Trump mátti þola harðari árásir en áður frá þeim Marco Rubio og Ted Cruz í kappræðum repúblikana í gær sem fram fóru í Detroit. Gagnrýndu þeir Rubio og Cruz Trump meðal annars fyrir stefnu hans í innflytjendamálum, viðskiptaævintýri hans sem og skapgerð hans.

Í umfjöllun um kappræðurnar á vef Guardian er þeim líkt við rifrildi á skólalóð. Lítið hafi verið um innihaldsríkar pólitískar rökræður heldur meira um persónulegar árásir frambjóðendanna sem berjast nú um að hljóta útnefningu sem forsetaefni Repúblikanaflokksins fyrir kosningarnar sem fram fara í nóvember.

„Litli Marco“ og „Lygarinn Ted“

Eftir forkosningarnar á Ofurþriðjudaginn svokallaða nú í vikunni má segja að Trump hafi tekið afgerandi forystu, valdamönnum repúblikana til mikils ama sem telja það einfaldlega gefið að flokkurinn tapi í forsetakosningunum ef Trump verður þeirra frambjóðandi.

Skotin gengu manna á milli í gærkvöldi þar sem Trump uppnefndi andstæðinga sína „Litla Marco“ og „Lygarann Ted.“ Cruz svaraði fyrir sig og sagði að Trump væri eins lítið barn sem vildi ekki gera annað en að rífast. Hann manaði hann svo til að reyna að telja upp að tíu:

„Teldu upp að 10, Donald. Teldu upp að tíu.“

Munu styðja Trump

Þá var einnig rætt um stærð kynfæra Trump, reyndar að frumkvæði hans sjálfs, þar sem hann svaraði fyrir athugasemd sem Rubio gerði við stærð handa Trump á kosningaviðburði í Flórída á dögunum. Sagði Rubio að Trump væri með litlar hendur og vildi sá síðarnefndi meina að með athugasemd sinni væri Rubio að vísa í aðra líkamsparta Trump.

„En ég fullvissa ykkur um að það er ekkert vandamál þar,“ sagði Trump.

En þrátt fyrir uppnefnin og persónulegu árásirnar þá hétu allir frambjóðendur því að styðja við bakið á hverjum þeim sem á endanum hlýtur útnefningu Repúblikanaflokksins. Þannig munu þeir Cruz og Rubio styðja Trump ef til þess kemur að hann verði forsetaefni repúblikana, en auk þeirra þriggja er John Kasich, ríkisstjóri Ohio, enn með í keppninni.


Tengdar fréttir

Tugir milljarða til að ná forystu

Dýrkeypt getur verið að komast langt í forsetakosningum í Bandaríkjunum. Clinton og Trump höfðu í lok febrúar varið 17,9 milljörðum króna í sín framboð. Trump varði þó einungis fimmtungi af fjárhæð Clinton. Frambjóðendur sem hætt

Romney segir Trump vera loddara

Fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, Mitt Romney, hefur hvatt flokksbræður sína til að hafna framboði Donalds Trump.

Trump og Clinton með ótvíræða forystu

Ofurþriðjudagurinn svonefndi skilaði Donald Trump nokkuð öruggu forskoti hjá Repúblikanaflokknum, helstu ráðamönnum flokksins til skelfingar. Hillary Rodham Clinton náði einnig að skjóta Bernie Sanders langt aftur fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×