Innlent

Ríflega þriðjungur barna á biðlista

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Börn niður í sex ára aldur eru á biðlistunum ásamt börnum með sérstakar þarfir.
Börn niður í sex ára aldur eru á biðlistunum ásamt börnum með sérstakar þarfir. vísir/Stefán
Skólar Hafnarfjarðarbæjar eru byrjaðir en enn vantar fjölmörg börn pláss á frístundaheimili bæjarins. Ríflega sjö hundruð umsóknir um frístundaheimili bárust en um 250 börn eru á biðlista og vantar 18-20 starfsmenn til að geta boðið börnunum pláss.

Geir Bjarnson, æskulýðs- og forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar, segir töluvert af fólki hafa sótt um stöðurnar síðustu tvo daga en jafnvel þótt ráðningar úr þeim hópi gangi upp vanti enn um 10-14 starfsmenn.

„Við höfum auglýst í stöðurnar í allt sumar á síðu bæjarins og síðustu vikur auglýst á öðrum stöðum. Við höfum einnig verið í samstarfi við Vinnumálastofnun sem hefur fjöldann allan af atvinnulausum á skrá en höfum ekki fengið umsóknir úr þeim hópi. Þetta er hálft starf og þótt fólk fái hálfar bætur á móti þá vill það mögulega ekki missa hlunnindi sín, eins og frítt í sund og bókasöfn.“

Börnin á biðlistanum eru alveg niður í sex ára aldur og sum hafa sérstakar þarfir. „Við forgangsröðum og hleypum yngstu börnunum fyrst inn en við hleypum ekki fötluðu barni inn nema stuðningsfulltrúi fyrir það hafi verið ráðinn.“

Geir Bjarnason, æskulýðs- og forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar.
Geir segir marga foreldra ergilega og skammast yfir að ekki hafi verið auglýst betur eftir starfsfólki. 

„Það er ekki vandamálið. Við höfum auglýst nóg. Þessi árgangur sem er að koma upp í skólana núna er stærsti árgangur Íslandssögunnar og við höfum að hámarki fimmtán börn á hvern starfsmann. Börnin eru það dýrmætasta sem við eigum og við gefum engan afslátt af því,“ segir Geir og bætir við að einnig hafi sérstaklega margar umsóknir borist frá eldri börnum ásamt því að með batnandi atvinnuástandi séu fleiri foreldrar útivinnandi. 

Biðlistarnir eru lengstir í Áslandsskóla og Hraunvallaskóla og húsnæðið er einnig orðið of lítið. „Þetta eru ný hverfi og margt fjölskyldufólk býr í þeim. Staðan er þannig að of mörg börn eru í of litlu rými en við erum að vinna í þeim málum, ásamt manneklunni.“ 

Ástandið hefur ekki verið svo slæmt í Hafnarfirði áður en Reykjavíkurborg glímdi við svipaðan vanda fyrir fáeinum árum. Geir segir að litið sé til þeirra leiða sem borgin notaði og reynt að læra af þeim. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×