Menning

RIFF fær 20 milljóna króna styrk

Bjarki Ármannsson skrifar
Hrönn Marínósdóttir er stjórnandi RIFF.
Hrönn Marínósdóttir er stjórnandi RIFF. Vísir/Valli
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík (RIFF) hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu sem nemur tæplega tuttugu milljónum króna til tveggja ára. RIFF var í hópi 38 evrópskra kvikmyndahátíða sem hlutu styrki að þessu sinni.

Styrkurinn er veittur af nýrri kvikmynda- og menningaráætlun Evrópusambandsins sem kallast Creative Europe. Í tilkynningu segja aðstandendur hátíðarinnar styrkveitinguna mikla viðurkenningu og að RIFF hafi hlotið mjög góða umsögn valnefndarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×