Lífið

Rífandi stemning á blaðmannafundi RIFF

Ellý Ármanns skrifar
Það var góð stemmning í Tjarnarbíói í morgun þegar Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, tilkynnti að miðasalan opnaði á morgun, fimmtudaginn 18. september. Atli Bollason, ofurhipster, kynnti fyrirkomulag hátíðarinnar fyrir gestum. Þar kom meðal annars fram að myndir RIFF verða sýndar í fjórum bíóum í ár, það er Bíó Paradís, Háskólabíói, Norræna húsinu og svo Tjarnarbíói.

Það var poppað í tilefni dagsins auk þess sem Jóhann Alfreð Kristinsson, uppistandarinn frægi í Mið-Íslandi, sló á létta strengi þegar hann kynnti veglega viðburðir hátíðarinnar. 



Atli Bollason.
Á hátíðinni verða sýndar um yfir 100 myndir, þar af tæplega fimmtíu myndir eftir kvenleikstjóra en um er að ræða leiknar myndir, heimildarmyndir og stuttmyndir. Myndirnar koma víða að úr heiminum m.a. frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Grænlandi, Færeyjum, Eþópíu og Úkraínu. 



Hallfríður Tryggvadóttir og Svava Stefánsdóttir.
Hátíðin hefst á bandarísk/íslensku vegamyndinni Land Ho! eftir Martha Stephens og lýkur þann 5. október með sýningu myndarinnar Boyhood í leikstjórn Richard Linklater, en kvikmyndagerðarmaðurinn fylgdist með söguhetjunni í tólf ár. Myndin hefur fengið einróma lof gagnrýnanda og þykir kvikmyndalegt þrekvirki.



Hrönn Marínósdóttir í viðtali.
RIFF er sannkölluð fjölmenningarhátið en myndirnar koma samanlagt frá fjörutíu löndum. Kvikmyndir RIFF í ár fjalla um allt milli himins og jarðar, allt frá trylltu ástarsambandi finnskra vandræðaunglinga yfir í átakanlega lélegt fótboltalið bandarísku Samóaeyjanna. 

Anna Margrét Björnsson og Valur Grettisson.
Meðal annars má finna mynd um einkennilegt líf heiðarlega hrappsins, James Randi, sem hefur einsett sér að fletta ofan af þeim sem þykjast vera með yfirskilvitslega hæfileika. Við skoðum einfalt líf síðustu veiðimanna Badjao ættbálksins og reynum að ráða í dularfullar gátur í þýsku kvikmyndinni Fuglaþingið þar sem dýralífið virðist enduróma heilt tónverk.  



Hrönn Marínósdóttir, Atli Bollason, Otto Tynes og Valur Gunnarsson.
Á RIFF gerast ítalskir menntamenn glæpasnillingar og eþíópísk stúlka þarf að berjast fyrir tilverurétti sínum í þrúgandi heimi feðraveldisins.

Jóhann Alfreið Kristinsson og Hallfríður Tryggvadóttir.
Gleðin við völd svo sannarlega.
RIFF.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×