Körfubolti

Ridnour til Orlando

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luke Ridnour þykir traustur leikmaður.
Luke Ridnour þykir traustur leikmaður. Vísir/Getty
Orlando Magic hefur samið við leikstjórnandann Luke Ridnour, en honum er ætlað að fylla skarð Jameers Nelson sem fór til Dallas Mavericks í síðustu viku.

Ridnour lék með Milwaukee Bucks og Charlotte Bobcats á síðustu leiktíð, en hann hefur auk þess leikið með Seattle Supersonics og Minnesota Timberwolves á ellefu ára löngum ferli í NBA-deildinni.

Ridnour hefur skorað 9,6 stig, tekið 2,3 fráköst og gefið 4,6 stoðsendingar að meðaltali í leik á ferlinum.

Orlando vann 23 leiki á síðasta tímabili og komst ekki í úrslitakeppnina.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×