Golf

Rickie Fowler sigraði í Abu Dhabi

Fowler lék frábært golf alla helgina og átti sigurinn skilið.
Fowler lék frábært golf alla helgina og átti sigurinn skilið. Getty
Allt umtal fyrir Abu Dhabi meistaramótið var um Jordan Spieth og Rory McIlroy sem léku saman fyrstu tvo hringina en það var annað ungstirni, Rickie Fowler, sem sigraði að lokum.

Nafn Fowler gleymist stundum þegar að Spieth og McIlroy mætast en hann minnti svo sannarlega á sig í dag og sigraði mótið, eftir frábæra frammistöðu alla helgina.

Annar mjög efnilegur kylfingur, Thomas Pieters, setti mikla pressu á Fowler á lokaholunni en hann endaði í öðru sæti á samtals 15 höggum undir pari, einu á eftir Fowler.

Henrik Stenson og Rory McIlroy deildu þriðja sætinu á 14 undir pari en Jordan Spieth endaði jafn í fimmta sæti á 11 undir.

Það er greinilegt að Fowler kann vel við sig á Evrópumótaröðinni en þetta er annar sigur hans eftir að hann sigraði á Skoska meistaramótinu í fyrra.

Golfveislu helgarinnar er þó ekki lokið en lokahringurinn á CareerBuilder Challenge fer fram í kvöld þar sem fyrrum PGA-meistarinn Jason Dufner leiðir með tveimur höggum.

Mótið er hluti af PGA-mótaröðinni en bein útsending hefst á Golfstöðinni klukkan 21:00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×