Formúla 1

Ricciardo: Lokakeppnirnar munu sanna hvor er hraðari

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Baráttan er hörð innan Red Bull en virðist vera á góðum nótum.
Baráttan er hörð innan Red Bull en virðist vera á góðum nótum. Vísir/Getty
Daniel Ricciardo hjá Red Bull telur að síðustu fimm keppnir tímabilsins muni skera úr um hvor ökumanna liðsins er hraðari, hann sjálfur eða fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel.

Ástralinn sem kom til Red Bull fyrir tímabilið hefur skákað hinum reynslumikla liðsfélaga sínum á tímabilinu hingað til. En nú virðist sem Vettel sé óðum að ná tökum á RB10 bílnum. Það verður því barist á jöfnum grundvelli til loka tímabils.

„Frammistaða mín á sunnudögum hefur verið að koma mest á óvart sem hefur verið frábært, ég virðist hafa lag á að spara dekkin,“ sagði Ricciardo.

„Þegar kemur að hraða er hann til staðar hjá Vettel og hann hefur verið hraðskreiðari í tímatökum undanfarið,“ bætti Ricciardo við.

Núna er staðan jöfn í tímatökum 7 á mann, en í keppnum hefur Ricciardo 11 sinnum endað ofar en Vettel í 14 keppnum.


Tengdar fréttir

Max Verstappen sá yngsti frá upphafi

Max Verstappen mun taka þátt í æfingu á föstudaginn fyrir japanska kappaksturinn. Hann verður þar með yngsti ökumaður sem hefur tekið þátt í keppnishelgi. En hann verður 17 ára í dag.

Hamilton vann í Singapúr - Rosberg kláraði ekki

Lewis Hamilton á Mercedes vann kappaksturinn í Singapúr. Hann náði þar með forystu í stigakeppni ökumanna. Sebastian Vettel varð annar og liðsfélagi hans hjá Red Bull, Daniel Ricciardo varð þriðji.

Ecclestone: Enn of auðvelt fyrir ökumenn

Bernie Ecclestone, einráður Formúlu 1, hefur sagt að sér þyki starf ökumanna enn of auðvelt. Hann vill að akstur Formúlu 1 bíla verði meiri áskorun.

Vettel: Akstursstíll skýrir lélegt gengi

Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Sebastian Vettel segir að ósamræmi milli aksturseiginleika RB10 bílsins og eigin akstursstíls útskýra hvers vegna illa hefur gengið í ár.

Lotus lofar bótum og betrun á næsta ári

Lotus liðið hefur átt erfitt tímabil og nú þegar á seinni hluta tímabilsins líður hefur E22 einungis fært liðinu 8 stig í keppni bílasmiða. Í fyrra náði liðið í 315 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×