Tíska og hönnun

RFF 2014: Kraftmikil sýning Jör

Marín Manda skrifar
Myndir/ Andri Marinó
Beðið var eftir sýningu Jör með mikilli eftirvæntingu sem að hófst eftir þó nokkra bið með blikkandi neon ljósum í loftinu og kraftmikilli rokk/metal tónlist.

Jör var lokasýning Reykjavík Fashion Festival og var Guðmundur Jörundsson hönnuður augljóslega undir miklum áhrifum goth tískunnar og leikhúsi í sinni hugmyndavinnu.

Hulin dökk andlit fyrirsætanna í rifnum tvílitum gallabuxum, herrajakkar í ull og síð ullarvesti fyrir bæði kynin.

Mikið var um smáatriði í flíkunum en fatalínan var fjölbreytt með fjölmörgum töffaralegum flíkum fyrir ekta rokk elskendur. Stórmikil sýning sem var rúsínan í pylsuendanum á frábærum tískuviðburði.

Guðmundur Jörundsson fatahönnuður
RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×