Lífið

Reynsluboltar í kennarastólinn

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Saga Sigurðardóttir og Ellen Loftsdóttir sjá um stílista- og ljósmyndanámskeið á vegum Reykjavik Fashion Academy sem hefjast í lok september.
Saga Sigurðardóttir og Ellen Loftsdóttir sjá um stílista- og ljósmyndanámskeið á vegum Reykjavik Fashion Academy sem hefjast í lok september. Mynd/Saga Sig
Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir og stílistinn Ellen Loftsdóttir hafa starfað í tískubransanum hérlendis sem erlendis um hríð og ætla nú að nýta þá reynslu og miðla áfram í skóla Reykjavík Fashion Academy. Þær munu halda utan um stílista- og ljósmyndanám skólans og eru spenntar að hefjast handa.

„Hlutverk okkar er fyrst og fremst að sníða/búa til námið og halda utan um námið í heild sinni, skipuleggja það, ráða inn gestakennara með sérhæfni sem og vera nemendum innan handar meðan á náminu stendur,“ segir Ellen og Saga bætir við: „Við munum leggja mikið upp úr skapandi hugsun, hugmyndavinnu og að hjálpa nemendum að finna sinn stíl. Ásamt því að fara í praktísk, tæknileg og undirstöðuatriði í greinunum tveim.“

Ellen og Saga segjast leggja mikið upp úr tengslum við atvinnulífið á námskeiðunum tveimur. „Okkur finnst það mjög mikilvægt að geta sýnt hvernig þessi heimur virkar með því að leyfa nemendum að spreyta sig á sínum eigin verkefnum undir leiðsögn kennara. Ásamt því fá nemendur að fylgjast með í tökum og kynnast þannig tísku-og auglýsingabransanum hér heima og úti,“ segir Ellen.

Flottur dúett.
Saga og Ellen eru báðar búsettar erlendis, Saga í London og Ellen í Kaupmannahöfn, svo þær gera ráð fyrir að veturinn bjóði upp á mikið flakk milli landa. Á meðan á náminu stendur – hvert námskeið er fimm vikur að lengd –gera þær ráð fyrir að vera á Íslandi.

„Maður er alltaf með eitthvað skemmtilegt í pípunum. Til dæmis er ég að fara að mynda fyrir norsku útgáfuna af ELLE með ljósmyndaranum Herði Ingasyni og munu nemendur fá að fylgjast náið með því ferli,“ segir Ellen og Saga tekur undir. „Ég hef verið að koma mikið til Íslands að mynda á árinu. Ég var að klára að mynda fyrir tónskáldið Önnu Þorvalds. Svo er ég á leiðinni út á land í nokkra daga að mynda herferð með listakonunni og ilmvatnshönnuðinum Andreu Maack og svo er ég að vinna með Jör og Aftur. Við Rebekka Rafnsdóttir erum einnig að vinna að heimildarmynd á Íslandi og svo eru fleiri verkefni á döfinni.“

Þær eru spenntar að hefjast handa við kennsluna. „Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að kenna og mjög gefandi, hef bæði verið að halda fyrirlestra í St. Martins í London og í Ljósmyndaskólanum hérna heima,“ segir Saga og Ellen segir verkefnið vissulega krefjandi. „Þetta leggst mjög vel í mig og er ég mjög spennt að takast á við þetta skemmtilega en sömuleiðis krefjandi verkefni. Það er alltaf gaman að geta miðlað reynslu sinni til þeirra sem yngri eru og ekki síst að fá innblástur frá þeim.“

Aðspurðar hvaða eiginleika þurfi til að ná langt í þessum harða heimi tískunnar stendur ekki á svörum frá stöllunum: „Gefast ekki upp þótt á móti blási, vera tilbúin að leggja hart að sér og síðast en ekki síst að hafa ástríðu og óbilandi trú á sjálfum sér.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×