Fótbolti

Reynir við Noreg í annað skipti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Markavélin Telma Hjaltalín flytur í annað sinn til Noregs. fréttablaðið/stefán
Markavélin Telma Hjaltalín flytur í annað sinn til Noregs. fréttablaðið/stefán
„Ég er að flytja til Noregs bæði til að bæta mig sem knattspyrnumann og vera nær fjölskyldunni,“ segir Telma Hjaltalín, sem gekk í raðir norsku meistaranna í Stabæk í vikunni en hún hefur verið á mála hjá Aftureldingu í sumar.

Foreldrar hennar eru búsettir í Noregi og spilaði það stórt hlutverk í ákvörðun hennar.

Telma hefur átt flott tímabil og skorað átta mörk fyrir liðið. Hún var ekki með liðinu gegn Stjörnunni í vikunni en þá tapaði Afturelding illa, 7-1. Telma missir einnig af lokaleiknum gegn HK/Víkingi í hreinum úrslitaleik um áframhaldandi sæti í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu.

„Fyrir tveimur árum var ég ekki almennilega tilbúin til að taka þetta skref en núna held ég að þetta sé rétt ákvörðun,“ segir Telma sem er aðeins 18 ára gömul.

Framherjinn lék áður með Stabæk árið 2011 og varð meðal annars bikarmeistari með liðinu.

Stabæk er norskur meistari í knattspyrnu og situr sem stendur í efsta sæti deildarinnar með fimm stiga forskot á Lilleström. „Þetta er stór klúbbur með ótrúlega góða aðstöðu svo það er allt til.“

Þessi unga knattspyrnukona setur markið hátt og ætlar sér stóra hluti.

„Ég hef verið í yngri landsliðum Íslands en núna er markmið mitt að komast í A-landsliðið og það að vera komin í lið eins Stabæk mun klárlega hjálpa mér í því að ná markmiðum mínum.

„Vonandi næ ég að taka þátt í einhverjum leikjum með liðinu á þessu tímabili,“ segir Telma.

Stabæk leikur við Klepp á morgun í norsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×