Handbolti

Reynir tekur við Fram á nýjan leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Reynir Þór mætir á nýjan leik í Safamýrina í vetur.
Reynir Þór mætir á nýjan leik í Safamýrina í vetur. vísir/stefán
Reynir Þór Reynisson er tekinn við Fram í Olís-deild karla í handbolta, en hann snýr aftur í Safamýrina.

Guðlaugur Arnarsson hætti með liðið eftir tímabilið eftir þriggja ára starf, en margir hafa verið orðaðir við starfið.

Reynir þjálfaði Fram tímabilið 2010/11 og er því að snúa aftur í Safamýrina, en hann hefur verið sérfræðingur um Olís-deildina á RÚV í allan vetur.

RÚV greinir frá þessu, en samningur Reynis er til tveggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×