Íslenski boltinn

Reynir hættur hjá HK

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Reynir stoppaði stutt við í Kórnum.
Reynir stoppaði stutt við í Kórnum. vísir/stefán
Reynir Leósson er hættur þjálfun 1. deildarliðs HK eftir nokkurra mánaða starf. Reynir hætti að eigin ósk. Þetta kemur fram á heimasíðu HK.

Jóhannes Karl Guðjónsson tekur við starfi Reynis en hann var áður spilandi aðstoðarþjálfari hjá HK.

HK er í 10. sæti Inkasso-deildarinnar með 11 stig eftir 11 umferðir. Liðið hefur aðeins unnið tvo deildarleiki í sumar.

HK varð svo fyrir miklu áfalli í síðustu viku þegar markahæsti leikmaður liðsins, Sveinn Aron Guðjohnsen, gekk í raðir Vals.

Næsti leikur HK er gegn Keflavík á útivelli á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×