Innlent

Reyndu að komast um borð í skemmtiferðaskip

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Tveir  ungir erlendir menn voru handteknir við Skarfabakka í dag. Þeir höfðu reynt að komast um borð í erlent skemmtiferðaskip og voru komnir inn á lokað svæði við skipið. Þeir voru handteknir áður en þeir komust um borð.

Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu, en í dagbók lögreglunnar kemur fram að þeir séu sagðir 16 og 17 ára gamlir. Því hefur Barnavernd verið kynnt um málið.

Þá hafa tveir menn í annarlegu ástandi verið vistaðir í í fangageymslu. Annar var handtekinn við Frakkastíg þar sem hann olli ónæði og hinn var við Smáralind þar sem hann ver ekki viðræðuhæfur sökum ástands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×