Lífið

Reyndi við Piece by Piece fyrir framan sjálfa Kelly Clarkson

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fínasta prufa hjá Skipper.
Fínasta prufa hjá Skipper.
Stephanie Skipper réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar hún flutti lagið Piece by Piece í blindu áheyrnarprufunum í the Voice á dögunum. Skipper söng lagið fyrir framan sjálfa Kelly Clarkson sem samdi sjálf lagið og sló rækilega í gegn með það árið 2016.

Clarkson flutti lagið fyrst í þætti American Idol og var um að ræða einn eftirminnilegasti flutningur í sögu þáttanna. Kelly Clarkson er fyrsti sigurvegarinn í American Idol.

Sjálf snéri Clarkson sér ekki við í stólnum og því mun Skipper ekki vinna með henni í þáttunum. Adam Levine og Blake Shelton voru báðir mjög hrifnir og vildu starfa með þessari fínu söngkonu.

Hér að neðan má sjá flutninginn í heild sinni.

Hér að neðan má síðan rifja upp þennan stórbrotna flutning Clarkson fyrir tveimur árum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×