Lífið

Reyndi fyrst fyrir sér í karókí

Þormóður Dagsson skipti trommuleik út fyrir söng. Hann er söngvari hljómsveitarinnar Tilbury en fyrsta lag sveitarinnar hefur vakið mikla lukku.
fréttablaðið/anton brink
Þormóður Dagsson skipti trommuleik út fyrir söng. Hann er söngvari hljómsveitarinnar Tilbury en fyrsta lag sveitarinnar hefur vakið mikla lukku. fréttablaðið/anton brink
Lagið Tenderloin með hljómsveitinni Tilbury hefur hlotið mikið lof meðal íslenskra tónlistaráhugamanna sem segja frumraun sveitarinnar lofa góðu um framhaldið. Söngvari Tilbury er trommarinn Þormóður Dagsson sem lék áður með hljómsveitunum Skakkamanage, Jeff Who? og Hudson Wayne.

„Þetta byrjaði vorið 2010, þá hafði ég sagt mig úr öllum hljómsveitunum sem ég spilaði með og farinn að stunda meistaranám. Ég varð þó eitthvað eirðarlaus og samdi nokkur lög fyrir sólóverkefni mitt, Formann Dagsbrúnar. Þegar ég ákvað loks að taka upp lögin vantaði mig hljóðfæraleikara með mér og þá fór þetta fyrst á skrið,“ útskýrir Þormóður. sem fékk til liðs við sig þá Kristinn Evertsson, Arnar Eldjárn, Guðmund Óskar og Magnús Tryggvason Elíasen og úr varð hljómsveitin Tilbury. Spurður út í hljómsveitarnafnið segir Þormóður það eiga lítið skylt við samnefnda borg í Englandi heldur vera vísun í samnefnda smásögu eftir Þórarin Eldjárn og stuttmynd að sama nafni í leikstjórn Viðars Víkingssonar.

Þetta er í fyrsta sinn sem Þormóður reynir fyrir sér sem söngvari en söngkunnátta hans hefur hingað til helst einskorðast við karókí. „Ég er mikill áhugamaður um karókí og hef stundað það grimmt síðustu ár. Ég söng reyndar mikið með þegar ég spilaði á trommur og varð oft hás eftir tónleika, þannig kannski var þetta eðlileg þróun.“

Þormóður viðurkennir þó að það hafi verið skrítin tilfinning að stíga í fyrsta sinn fram á svið sem söngvari hljómsveitar í stað þess að vera á bak við trommusettið. „Ég var alltaf frekar öruggur með mig á bak við trommusettið, þess vegna er þetta skemmtileg áskorun fyrir mig,“ segir hann að lokum.

Fyrsta plata Tilbury, Exorcise, kemur út á vegum Record Records þann 7. maí. - sm

fréttablaðið/anton





Fleiri fréttir

Sjá meira


×