Erlent

Reyndi að synda til Norður-Kóreu

Suður-Kóreumenn handtóku bandarískan ríkisborgara sem gerði tilraun til þess að synda yfir til Norður-Kóreu í gær. Maðurinn er á þrítugsaldri og er ekki vitað almennilega hvað honum gekk til en suður kóreskir miðlar fullyrða að hann hafi sagt landamæravörðum að hann hafi viljað hitta Kim Jong-un, hinn unga leiðtoga Norðanmanna.

Afar sjaldgæft er að menn reyni að synda yfir ánna sem skilur ríkin tvö að enda er það háskaleikur þar sem þungvopnaðir hermenn beggja ríkja gæta landamæranna afar vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×