Innlent

Reyndi að stinga lögregluna af við Ártúnsbrekku

Gissur Sigurðsson skrifar
Ökumaðurinn var stöðvaður í Mosfellsbæ.
Ökumaðurinn var stöðvaður í Mosfellsbæ. Vísir/Pjetur
Ölvaður og dópaður ökumaður reyndi að stinga lögregluna af laust fyrir klukkan tvö í nótt  með því að sinna ekki stöðvunarmerkjum lögreglu á móts við N-1 ofan við Ártúnsbrekku.

Lögreglan veitti honum eftirför og náði að stöðva hann þegar komið var inn í Mosfellsbæ, og var hann og þrír farþegar handteknir.

Farþegarnir voru líka í annarlegu ásandi og lítilræði af fíkniefnum fanst í bílnum. Þeir voru allir vistaðir í fangageymslum vegna frekari rannsóknar á málinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×