Sport

Reyndi að stinga lögguna af

Sheldon Richardson.
Sheldon Richardson. vísir/getty
Enn einn NFL-leikmaðurinn búinn að koma sér í vandræði.

Að þessu sinni er það varnarmaður New York Jets, Sheldon Richardson. Það er búið að kæra hann fyrir ýmislegt.

Hann tók þátt í kappakstri út á þjóðvegi og þegar löggan greip hann glóðvolgan reyndi hann að stinga af.

Tveir aðrir menn voru í bílnum með Richardson og tólf ára barn. Í bílnum var hlaðin skammbyssa og bíllinn lyktaði af kannabis.

Þetta atvik kom upp aðeins tveim vikum eftir að Richardson var dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir eiturlyfjanotkun.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×