Erlent

Reyndi að opna neyðarútgang í miðju flugi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Þrír farþegar yfirbuguðu manninn.
Þrír farþegar yfirbuguðu manninn. vísir/getty
Farþegaþotu Southwest Airlines á leið frá Chicago til Sacramento var snúið til Omaha eftir að farþegi um borð reyndi að opna neyðarútgang vélarinnar í miðju flugi í gær.

„Einhver herramaður ákvað að hann þyrfti að heimsækja drottinn í dag og reyndi að opna hurðina,“ sagði Monique Lawler í samtali við sjónvarpsstöðina KABC-TV.

Þrír farþegar yfirbuguðu manninn og héldu honum þar til vélin lenti í Omaha. Maðurinn var handtekinn við lendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×